Allt og ekkert..

Við erum bara búin að hafa það fínt familían. Gísli er að fara til Miami á sunnudaginn og verður heila viku í sólinni, við Andrea ætlum til eyja yfir júróvisjón helgina að heimsækja afa og skoða nýju íbúðina hennar ömmu.

En já það hefur orðið fjölgun á þrastarásnum, þau Pétur og Ingunn Eva hafa bæst í hópinn. Þau halda Erlu félagsskap yfir daginn. Það eru s.s. komnir tveir gárar í viðbót. Karl og kona. Karlinn er grænn eins og Erla og ber nafnið Ingunn Eva :) Konan er ljósgul og ber nafnið Pétur. Andrea var ekki til í að svissa nöfnunum.

En aðrar fréttir af okkar snilldardóttur eru þær að hún er búin að fá tvö af þeim þrem hlutum sem hún biður hvað mest um.

Hún fékk göt í eyrun á annan í hvítasunnu. Stóð sig eins og hetja, allt annað en mamma hennar þegar hún fékk sér göt í den.. meira en 20 ár síðan..uhemm, en ég man enn hvað þetta var sárt, grét rosalega þegar búð var að gata annað eyrað, þurfti að koma aftur eftir viku, til að gata hitt. Núna er skotið í bæði eyrun í einu og hún Andrea blikkaði varla auga. :)

Á miðvikudaginn fórum við mæðgur til augnlæknis og kom í ljós að Andrea þarf gleraugu. Skvísan ljómaði í framan og hoppaði af kæti :) engar ýkjur. Hún stóð sig mjög vel hjá augnlækninum, sat sjálf í stólnum og gerði allt sem hún átti að gera. Fannst bara pínu óþægilegt þegar droparnir voru settir í augun. En já hún er s.s. fjarsýn, akkurat öfug við móður sína… sem betur fer.. því fjarsýnin getur elst af henni. Hún er með +3,2 á vinstra auga og +2,5 á því hægra. Við fórum síðan saman í Prooptik og hún valdi sér bleik gleraugu, en ekki hvað… þau eru mjög fín á henni. Hún var nú frekar sár yfir að fá ekki að ganga út með gleraugun, en það þarf víst að setja glerin í þau. Hún fær þau annað hvort í dag eða fljótlega eftir helgi.

Andrea í Víkurfréttum

Andrea Ruth í kröfugöngu með alþýðu Hafnarfjarðar tekið úr Víkurfréttum 19 tb.

Andrea Ruth í Víkurfréttum

Myndband frá fögruhlíð

Tónlist notuð - Newton Faulkner

“Safe link as” eða álíka til að ná í lag :)

Til Hamingju með dagin gamli !

Anton bróðir á afmæli dag.

hann heldur úti síðu : www.spjallid.is endilega skoðið hana !

IMG_2928.JPG