Köben

Við, Maren, Elísabet, Þóra Sigga og ég, skelltum okkur til Köben um síðustu helgi. Það var ofboðslega gaman. Flugum út á fimmtudagsmorgni og höfðum því 3 daga í að versla og það var sko verslað :)

DSC03810.JPG

Fimmtudeginum eyddum við á strikinu. Það var mjög gaman að rölta þar og skoða um. Ekki var samt mikið verslað þá fyrir utan eitt par af GEÐVEIKUM skóm sem ég fann í Aldo. Maren fann sér líka eitt slíkt par í Aldo en einungis íslenskir bankastjórar hefðu haft efni á þeim :) Það voru víst bara framleidd ansi fá pör af þessum tilteknu skóm og einungis 8 slík pör voru til í allri Danmörku. Við slöppuðum bara af um kvöldið, hlógum soldið mikið. Ég tók nefnilega með mér bréf sem ég fann heima hjá mömmu og pabba. En það voru bréf frá því að við vorum í 9 bekk. Flest voru þau frá Elísubetu til mín. Já maður var víst að skrifast á í tímum. Þau voru ógeðslega fyndin og verða vel geymt þangað til Elísabet giftir sig, þá verða þau dregin upp aftur :)

Á föstudeginum kíktum við í Fiskitorfuna og versluðum alveg slatta mikið. Maður gekk sig alveg upp að hnjám í þessari ferð. Kvöldið var síðan hápunktur dagsins en þá fórum við að borða á Reef ´n Beef. Maturinn var sjúklega góður. Við pöntuðum tvö forrétti sem við deildum á milli okkar en það var Krókódíll í einhvers konar orlydeigi og reyktur Emu sem var vafinn inn í svona “öðruvísi” tortillaköku. Í aðalrétt fengum við okkur allar Tazmanian devil, en það er medium rare Kengúrulund með sætum kartöflum, ætisþistlum og piparsósu. Kjötið var ótrúlega mjúkt og bráðnaði næstum því í munninum. Síðan í eftirrétt fengum við okkur Death by Chocolate. Þetta var ofboðslega gott allt saman og ekki svo dýrt einhver 5000.- á mann með víni og kokkteil.

DSC03826.JPG

Við gerðum síðan heiðarlega tilraun til að djamma í Köben og kíktum á Rosie McGee. Það var frekar gaman þar svona framan af kvöldinu. Við fífluðumst soldið með myndavélina og drukkum nokkrar tegundir af kokkteilum. Síðan ætluðum við að færa okkur um set en fundum engan skemmtilegan stað. Enda vorum við orðnar ansi þreyttar eftir tveggja daga labb þannig að við fórum bara snemma heim. Elísubet fannst það soldið lélegt af okkur.

Á laugardeginum kíktum við í Fields, þar var verslað enn meira. Ég verslaði samt mest í HM. Um kvöldið kíktum við í Tívolíið og það var GAMAN. Ég er svo stolt af mér, ég fór í RÚSSÍBANA!!!!! Það var geðveikt ætla sko pottþétt aftur langar að fara aftur til Köben bara til að geta borðað á Reef ´n Beef, kíkt í HM og farið í rússíbana :) Það yrði sko góð ferð. Ég og Maren fórum svo í Star flyer en það er svona RISA róla, það var geðveikt maður sá bara næstum því yfir alla Köben.

DSC03827.JPGSunnudeginum eyddum við á Strikinu og Nýhöfn. Fórum í siglingu og það var djassband um borð að spila. Þetta var alveg 1,5 klst sigling. Farið var um höfnina og inn skurði. Maður sá ýmislegt, aftan á hafmeyjuna og svo sáum við sænskt sjóræningaskip. Við fórum síðan bara snemma upp á flugvöll, ansi fegin að við gerðum það því röðin í tax free dæmið var mjög stutt þegar við komum en gífurlega löng þegar við vorum búnar í henni.

Mig langar ofboðslega að fara í sumar til Danmerkur og vera í svona sumarhúsi. Það yrði örugglega gaman.

Þóra Sigga er líka búin að henda inn þó nokkuð mikið af myndum endilega kíkjið á þær !

guðrún flott



5 Skilaboð

  1. Takk fyrir frábæra ferð. Var ekki til nein betri mynd af mér en þessi til að setja inn með blogginu???
    Kveðja frá Eyjum

    Þóra Sigga Þóra Sigga | 27 Oct, 2007 | Svara þessu

  2. Mér finnst nú myndina af þér Þóra bara fín miðað við myndirnar þarna neðst af henni Gunnu. Je dúddamía segi ég nú bara :)thíhí
    En gaman að heyra ferðasöguna og skoða myndirnar, greinilegt að það var mjög gaman hjá ykkur

    Sigrún María Sigrún María | 28 Oct, 2007 | Svara þessu

  3. Takk fyrir frábæra ferð :O) Það var geðveikt gaman. Myndirnar af mér þarna neðst eru auðvitað alveg hræðilegar og mér finnst þú Þóra mín ekki hafa yfir neinu að kvarta með þína hehe.

    Guðrún Guðrún | 29 Oct, 2007 | Svara þessu

  4. Ég sé að það hefur verið stuð í Köben:)
    Flottir sjóræningjabúiningar!!!
    Ég kíki kannski við í dag eða kvöld hjá ykkur og sæki fimleikabolinn.

    Esther Esther | 31 Oct, 2007 | Svara þessu

  5. já endilega gerðu það :)

    Guðrún Guðrún | 31 Oct, 2007 | Svara þessu

skrifa skilaboð