finally..
By Guðrún on Dec 5, 2007 in Fréttir
jæja, loksins ætla ég að gefa mér tíma til að setja eitthvað hérna inn. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að við höfum ekki haft neinn tíma fyrir að setja inn fréttir af okkur.
Hérna er stutt frásögn af því helsta sem hefur gerst síðustu tvö mánuði.
Andrea losnaði við gifsið í lok október. Hún stóð sig eins og hetja í öllu þessu ferli. Hún byrjaði í Iðjuþjálfun hjá henni Elsu og gengur það mjög vel. Það eru strax komin framför með hendina komnar hreyfingar sem ekki voru áður. Við erum þvílíkt ánægð með það.
Í nóvember byrjaði ég að vinna hjá Askar Capital, en það er nýr fjárfestingarbanki. Ég losnaði samt ekki frá borginni fyrr en á föstudaginn var. Var að gera 9 mánaða uppgjörið fyrir Eignasjóðinn. Það var því mikið að gera vinnulega séð í nóvember, en það var ekki það eina.
Veikindi herjuðu á fjölskylduna í nóvember, mamma kom í bæinn rétt fyrir afmælið sitt og veiktist svo illa að hún lendi inn á spítala í 4 daga. Daginn áður en mamma losnaði út veiktist Andrea fékk þessa leiðinlegu ælupest og svo ég nokkrum dögum seinna.
Vinahópurinn fór á “jólahlaðborð” á Einar Ben í lok nóvember og gekk það bærilega. Við höfðum pantað rauða herbergið rúmum mánuði fyrr en fengum það ekki. Gísli kríaði út góðan afslátt vegna þess. En við sátum í bláa herberginu og þetta var furðulegasta jólahlaðborð sem ég hef farið á. Þjónustan var góð og maturinn fínn en þetta var eiginlega svona pinna jólahlaðborð. Það var komið með tvö bakka á borðið til okkar og á bakkanum var s.s. maturinn í litlum skálum og meðlætið var einnig borið fram í litlum skálum. Þær voru það litlar að þegar fjórir (af tólf) voru búnir að fá sér t.d. brúnar kartöflur þá voru kartöflurnar búnar og þurfti að kalla á þjóninn til að fá áfyllingu. Þið getið ímyndað ykkur vinnuna fyrir þjónana. En allir fóru saddir út og sáttir en hissa á útsetningu hlaðborðsins.
Núna er jólaundirbúningurinn komin á fullt, enda bara 19 dagar til jóla ![]()


















Já þetta var nú dálítið furðulegt jólahlaðborð. Var fljót að kasta frá mér skólabókunum til að lesa nýju færsluna. Jæja best að opna þær aftur svo maður fái nú ekki samviskubit. Verðum í bandi.
hehe það er alltaf gott að fá smá afsökun til að kasta frá sér skólabókunum