Ný síða
By gisli h on Apr 23, 2008 in Fréttir
jæja þá er Gísli búinn að uppfæra síðuna, það tók smá tíma en hafðist
Við erum búin að vera að tala við arkitekta, erum búin að hitta tvö, Guðrúnu hjá Arkþingi og Einar hjá Arkiteó, þau eru bæði líklega mjög klár. Mér persónulega leist betur á Guðrúnu. Fannst hún meira connecta sig inn á það sem við vorum að hugsa. En það verður víst að taka fram að í viðtalinu við Guðrúnu, þá var hún búin að kynna sér lóðina aðeins, staðsetningu og annað. Einar var ekki búin að því, sem urðu smá vonbrigði, því við sendum honum sömu gögn og Guðrúnu áður en við mættum á svæðið til að spjalla. Guðrún rissaði aðeins upp og kom með hugmyndir um hvað væri hægt að gera, á meðan Einar spjallaði bara. Við fengum síðan tilboð frá Kollgátu, arkitektar á Akureyri, en við tökum því ekki. Við erum að bíða eftir upplýsingum frá Kára, hjá AOK en hann er víst klár en seinn. Eins og við erum búin að kynnast, held að það sé komin vika síðan við höfðum samband við hann. Á föstudaginn erum við svo að fara og hitta Steffan hjá Einrúmi. Verður gaman að sjá hvernig það fer og hvað þau hafa að bjóða.
Við komumst loksins upp á lóðina okkar. Við vorum búin að gera nokkrar tilraunir, lata fólkið sem nennti ekki að ganga. En við fórum s.s. á sunnudaginn og röltuðum á lóðina. Þetta verður rosa flott hjá okkur.

Annars er bara allt fínt að frétta, mér líður bara vel í vinnunni hjá Grant Thornton. Byrjaði þar 1. apríl og eins og Guðrúnu Torfhildi einni er lagið þá var mér fleygt beint út í djúpu laugina. En það var samt gaman, er þar enn að svamla reyndar. Búið að vera heeellllingur að gera og líklega vegna þess er ég verri í bakinu heldur en ég var. Það fer vonandi að lagast þar sem ég byraði í sjúkraþjálfun í dag. Ég fór greinilega mjög sniðuga leið í að fá sjúkraþjálfara. Ég vildi vera í Orkuhúsinu, þægilega stutt frá vinnunni, fór bara á heimasíðuna í gær og skoðaði sendi síðan tölvupóst á þann sem mér leist best á. Hann svaraði um hæl og sagði reyndar að það væri allt upptekið hjá sér en hann gæti komið mér að hjá þjálfaranum sem er með stofu við hliðiná honum. Ég tók því og fékk tíma í dag. Sjúkraþjálfarinn sagði mér síðan í dag að ef ég hefði hringt og athugað með tíma hefði ég pottþétt fengið þau svör að það væri 2 mánaða biðlisti. Mér líst ágætlega á kauða, hann heldur að nudd og tog geti komið mér í gott lag. Síðan lét hann mig hafa æfingar til að láta einkaþjálfarann hafa fyrir hann til að flétta inn í prógrammið.
Við Gísli kíktum á Ladda showið um síðustu helgi með vinnunni minni, og var showið bara mjög skemmtilegt fram að hlé, eftir hlé var það orðið soldið langdregið og það var minna um persónurnar hans, meira hann svona upp á sviði að vera með stand up. Hann tók þó Bubba snildarlega vel
Síðan í apríl er búið að vera soldið um sumarbústaðarferðir. Familían fór helgina sem Gísli átti afmæli, vorum þá á Minni Borgum og var það bara ofboðslega næs helgi. Fengum góða gesti og slöppuðum af í heita pottinum. Andrea bakaði afmælisköku handa pabba sínum, bleika sjóræningaköku
síðan faldi hún afmælisgjöfina sína til hans. En það reyndist vera, hamar, málband og vinnuhanskar. Kemur sér vel fyrir smíðina.
Ég fór síðan helgina eftir í stelpuferð í bústað og við vorum í Brekkuskógi. Það var mjög skemmtileg helgi og þá komu sko óvæntir gestir í heimsókn. Ungir menn á aldrinum 20-45 ára a.k.a. The Roundtable, Reykjavík. Þeir voru víst að innvíga nýjan meðlim og hann fékk að spæla hjá okkur egg. Urðum að leyfa það þar sem við (réttara sagt Maren og Begga því hann gæti verið sprautufíkill) vildum ekki taka hann uppí þar sem hann var að húkka far einhvers staðar hjá Laugarvatni. Við leyfðum honum því að koma inn og spæla egg. Nokkrir félagar hans úr klúbbnum voru með honum og kíktu þeir inn með honum. Ísland er alltaf jafn lítið og var einn af þessum félögum hans, strákur úr árgangnum okkar í eyjum og svo var einn hafnfirðingur þarna sem vissi hver Gísli og Elfar voru. En þeir voru s.s. hjá okkur þarna á laugardagskvöldið að spjalla og syngja í sing star. Helgin var að vitaskuld mjög skemmtileg.





















Til hamingju með nýja lookið töff að hafa svona construction style á þessu :)fyrst þið eruð nú að fara byggja..En allt svona líka bara fínt að frétta frá mér það er búið að taka skrúfuna úr fætinum og svo var mér sagt að ég mætti fara vinna á mánudaginn svo ég er bara mjög sáttur loksins að fara fá frelsi aftur
já og líka ef ykkur langar að sjá þessa huge skrúfu þá er hún hérna heima ásamt myndum af þessu títan dóteríji í fætinum
byðjum að heylsa öllum á þrastarásnum..
Ég er alveg dolfallinn yfir þessu flottu slædós frá 2007, mér leiddist ekki í eins sekúndu, fattaði reynar ekki fyrr en í lokin að þetta var á silent. Er farin að stela þessari hugmynd Bæjó!!
Btw. nýja lookið passar vel við húsbyggjanda þemað hjá ykkur.
Hæ Hæ
Já animoto hendi þessu saman fyrir mig. Kom bara mjög vel út