Afmælisfár
By Guðrún on Jun 11, 2008 in Fréttir
Ætlaði fyrir löngu að vera búin að segja ykkur aðeins frá afmælisfárinu sem er búið að vera og er ekki lokið enn. En ég fór alveg í bakinu á sjómannadaginn og hef eiginlega bara ekki verið stólum hæf síðan. Sem er auðvitað ekkert sniðugt þegar maður vinnur við tölvu allan daginn.
En já s.s. eitt stærsta afmælið er væntanlega 100 ára afmæli Hafnarfjarðar. Við tókum auðvitað þátt i gleðinni og fórum með Andreu og Heklu á laugardeginum á Thorsplanið, stelpurnar voru málaðar í framan og á meðan við biðum í röðinni eftir því þá fylgdist maður með götuleikhúsinu. Voru flestir af erlendu bergi brotnir sem voru að taka þátt í því, en að engu síður skemmtilegt. Við röltuðum síðan í Hellisgerði og fengu stelpurnar gefins óskasteina, hittu álfadrottinguna og “kónginn”, en það var víst kvenkynskóngur. Það var mjög mikið um að vera í Hellisgerði og gaman að rölta þar um. Við fórum síðan auðvitað á Víðistaðatún að hlusta á tónleikana aðallega samt til að hlusta á sveitina hennar Ástrósar, Vicky Pollard. Á sunnudeginum kíkti pabbi til okkar og fór hann með okkur niður á bryggju, þar var nú eitthvað sem heillaði. Auðvitað hoppukastalinn fyrir yngri kynslóðina, björgunarþyrlan sýndi björgunaraðferðir og svo var boðið upp á siglingar en það var svo löng röð í það að við nenntum ekki að bíða. Við fórum þvi að skoða víkingagötuna og ætluðum síðan að gæða okkur á 100 metra afmæliskökunni.. en við vorum víst við vitlausan enda. Skurðarmennirnir dreifðu sér ekki og voru allir á einum endanum. Við gáfumst upp og kíktum bara í bakaríið og fengum okkur kleinu og snúð.
Þessa helgi átti amma líka afmæli og var haldið upp á það í eyjum. Minnir að hún sé orðin 86 ára.. alveg til skammar að muna ekki hvað amma sín er gömul.
Síðan núna 2 júní þá átti Svandís afmæli.. það var náttla stærsta afmælið, skvísan orðin 1 árs og lét sko vin sinn (9 mánaða) finna fyrir því að hún væri eldri. Var ansi hrifin af hárinu hans, greyið var orðinn soldið hræddur við hana. Ósk mamma hennar átti líka afmæli 6 júní ásamt Ástrósu. Síðan núna 17 júní þá á Þóra Gísla afmæli og Anna amma og Valdi afi eiga brúðkaupsafmæli.. þannig það er nóg að gera í að óska fólki til hamingju






















skrifa skilaboð