Ágúst
By Guðrún on Aug 21, 2008 in Fréttir
Við höfum nú ekki verið dugleg að skrifa inn fréttir mjög lengi. Veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Það er svo margt búið að vera að ske. Mikið af afmælum og svo auðvitað þjóðhátíðin. En já byrjum bara á henni…
við s.s. fórum á Þjóðhátíð, Gísli hefur aldrei farið og ég hef ekki farið síðan árið 2000. Við skemmtum okkur konunglega eins og sjá má af myndunum. Það er samt soldið mikið að taka heila helgi í þetta og væri ég alveg til í næst þegar við förum að taka bara sunnudaginn, hann er jú alltaf skemmtilegastur
Af afmælum í mánuðinum þá er alltaf nóg af afmælum, Hrafnkell varð 3ja ára, ég varð 29 ára, Elí frændi varð 29 ára og Esther verður 33 ára (eða segjir maður tuttugu og þréttán?).
Ég er að fara á ráðstefnu í danmörku síðustu helgina í ágúst á vegum Grant Thornton. Verður örugglega mjög svo gaman en ætla að reyna að losna við að taka þátt í fótboltamótinu. Hefur einhvern vegin alltaf tekist að fá boltann í andlitið eða magan þegar ég hef verið neydd til að spila fótbólta. Vil frekar vera í öruggri fjarlægð á áhorfendabekkjunum. .. og talandi um fótbolta, við fórum auðvitað á FH-Aston Villa. Það var rosalega gaman og alveg geðveikt að FH skildi skora!!
Ég ætla að geyma stærstu fréttina þar til í kvöld eða á morgun. Ætla að skella inn mynd með henni.


















hmmm forvitnin að fara með mann… hef eina kenningu
Forvitni forvitni…
Hvaða vitleysa er það að taka bara sunnudaginn á þjóðhátíð, auðvitað tekur maður alla helgina í þetta. Það er bara svo langt síðan að þú hefur verið, að þú ert bara ekki komin í æfingu ;0)