Lítið kríli


jæja þá er það stóra fréttin, alla vega sú stærsta í sumar :)  Það er lítið kríi á leiðinni í heiminn, áætlaður fæðingardagur er 27. febrúar 2009.

Hérna fyrir ofan eru myndir sem teknar voru á mánudaginn og var ég þá gengin 12 vikur og 3 daga.

Við sögðum síðan Andreu fréttirnar á þriðjudaginn og hún vissi ekki alveg hvernig hún átti að taka því, en eftir smá stund og spjall þá áttaði hún sig og varð ansi kát :) fór að spurja mikið um litla barnið í maganum, hvort það væri í fötum, með sundgleraugu og hvernig það gæti andað osfrv. Allt mjög skemmtilegar spurningar :) Hún er búin að skoða sónarmyndirnar alveg fram og til baka og er alveg jafn spennt yfir þessu og foreldrarnir.



6 Skilaboð

  1. Til hamingju með þetta og mér líst vel á þessa dagsetningu haha :D. ég vona að fæða barn í fötum og með sundgleraugu verði ekki vont :D

    Magnús. Magnús. | 22 Aug, 2008 | Svara þessu

  2. Til Lukku með barnið :) Gangi ykkur vel :D

    bjarni bjarni | 22 Aug, 2008 | Svara þessu

  3. Innilega til hamingju með krílið ;0*
    Loksins get ég sagt einhverjum frá þessu

    Þóra Sigga Þóra Sigga | 22 Aug, 2008 | Svara þessu

  4. Til hamingju, frábærar fréttir. Hvorki meira né minna en 4 skiptið á einni viku sem við fáum óléttufréttir!! Það verður greinilega stuð á Lansanum í febrúar :)

    Fjóla Fjóla | 22 Aug, 2008 | Svara þessu

  5. Þetta eru frábærar fréttir, innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn :-)

    Svo þurfum við að fara að hittast við tækifæri.

    kv,
    Jón og Beta

    Jón Grétar og Beta Jón Grétar og Beta | 24 Aug, 2008 | Svara þessu

  6. Já til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn

    gaman að sjá hvort þetta verði frændi eða frænka :)

    Anton frændi Anton frændi | 27 Aug, 2008 | Svara þessu

skrifa skilaboð