fréttir af familíunni

Af okkur er bara allt ágætt að frétta. Andrea fór til Guðmundar bæklunarlæknis í gær. Bara í eftirlit. Hann var mjög ánægður með réttuna og beygjuna í 4 fingrum (frá vísifingri til litla fingurs). Hann var einnig ánægður með réttuna á úlnliðnum og virðist aðgerðin í september hafa virkað mjög vel á úlnliðinn og þessa 4 putta. Þumalfingurinn er örlítið meira út heldur en fyrir aðgerð en árangurinn af aðgerðinni á hann varð víst ekki eins og vonast var eftir. Svo bara myndist hann á hluti sem við vissum fyrir að vöðvarnir í lófanum væru litlir og að hendin væri minni. Einnig athugaði hann aðeins skynjunina hjá henni og virðist sem skynjunin á handarbakinu hjá litla fingri sé öðruvísi heldur en á sama stað á þeirri hægri. Hann fylgdist síðan með henni beygja og rétta, halda eins fast og hún getur og hneppa tölunum á kápunni minni. Hann var ánægður með hvernig hún beitir hendinni sérstaklega í að hneppa. Annars er planið bara að halda áfram í iðjuþjálfun, bíða með spelku eða aðrar leiðir til að rétta hendina af og svo á hún að mæta aftur til hans í apríl.
Eftir tímann var Andrea aðeins að spá í þetta, afhverju þetta kom fyrir hana osfrv. Þeim spurningum var svarað eftir bestu getu.

Við fengum tvær frumtillögur að húsinu frá arkitektinum. Nú ætlum við að leggjast yfir þær um helgina og næstu daga og sjá hvað það er sem við viljum hafa nákvæmlega og svona. Bara spennandi :)

Bumbubúinn er orðinn 17 vikna í dag og er ég öll að hressast í ógleðinni.. sem betur fer. Þarf bara að passa upp á að borða. Sef reyndar ekkert ofvel. Ef Andreu vantar ekki aðstoð á nóttinni við að fara á wc eða snýta sér þá vakna ég bara sjálf og ligg vakandi í svona 1-2 klst. er misjafnt. Bakið hefur verið frekar slæmt, brjósklosið fór víst á hreyfingu á þriðjudaginn og ég gat ekki gengið þá. Tók AFAR lítil skref til að þess að finna sem minnst til. Sjúkraþjálfarinn reyndi að losa aðeins um spennuna en þorði ekki að gera mikið. Síðan lá ég bara fyrir eftir hádegi á þriðjudeginum og allan miðvikudaginn. Mætti svo eins spræk og hægt er í vinnu í gær. Ég get alla vega gengið eðlilega þó ég sé með verki og doða niður í fótinn. Síðan er ég að fá svona taugakippi í fótinn. Það er soldið fyndið en stundum pirrandi.

Við gleymdum víst að óska afmælisbörnum mánaðarins til hamingju með daginn. En hann pabbi (Gummi afi) varð 60 ára 1. september og síðan átti Guðrún frænka afmæli 13 september og Elísabet Grétars átti afmæli 9. september. Við óskum þeim auðvitað öllum til hamingju.

IMG_1646.JPG

Gummi 60 ára

Guðrún frænka 25 ára

DSC00804.JPG

Elísabet cirka 2eins :)



skrifa skilaboð