lítið hjarta
By Guðrún on Sep 24, 2008 in Fréttir
Skvísan okkar hefur stundum ansi lítið hjarta. Hún vaknaði í nótt með tárin í augunum því hana dreymdi illa. Ég tók utan um hana og spurði hvort hún vildi segja mér frá draumnum, hún sagði að hana hefði dreymt að hún vildi fara í pils en hefði ekki mátt fara í pils. Þetta var fljótlagað með smá knúsi og klósettferð, eftir það var draumurinn gleymdur.


















Hæ hæ ég er búin að valsa fram og til baka um síðuna enda langt frá síðustu heimsókn…
hahaha en sæt martröð ég vildi að ég fengi svona martraðir…..:)