Það er kominn snjór

jæja þá er snjórinn kominn.. en skilst að hann fari í dag eða á morgun. Andrea var alveg himinlifandi í gær þegar hún sá snjókomuna og enn ánægðari í morgun þegar hún sá að snjórinn var enn þá. Snjórinn hafði því góð áhrif í morgun, auðveldara að vekja litlu svefnpurkuna og auðvelt að koma henni í föt sem hæfa veðri. Hún vill alltaf vera í pilsi eða kjól alveg sama hvernig viðrar. En í morgun sagði hún: “mamma þú mátt velja fötin því ég veit ekki hvaða föt eru góð í snjó.” Mín voða ánægð með það enda gekk morgunin stórslysalaust og Andrea gat ekki beðið eftir að komast út og gera engla í snjónum.

Ég er enn og aftur komin á pensilín, fékk einhverja kvefpest með tilheyrandi beinverkjum og hausverk dauðans. Kíkti á læknavaktina í gær og kom í ljós að ég er með stíflaðar kinnholur og jafnvel einhverja sýkingu í þeim. Þannig pensílin var skaffað.. hlakkar til eftir 10 daga þegar sá kúr er búinn.

Við hittum arkitektinn aftur í gær og fórum yfir teikningarnar 3 sem við höfum fengið og sögðum henni hvað okkur fannst um þær og hún ætlar að leggjast yfir þetta og hefur svo samband með 4 tillöguna í næstu viku :) Allt mjög spennandi.. þrátt fyrir svartan efnahag í landinu. Maður verður bara hálf niðurdreginn á því að hlusta á fréttir.



skrifa skilaboð