Forseti, seðlar og jól..

jæja þá er komið í ljós hver verður forseti Bandaríkjanna. Það eru miklar væntingar gerðar í garð Obama, vonandi nær hann að mæta þeim :) Annars er ég ósköp sátt með niðurstöður kosninganna, hefði ekki viljað sjá McCain vinna.

Síðan var víst einhver “snillingur” sem borgaði með 10.000.- kr. seðli fyrir matinn sinn, seðillinn var með mynd af Davíði Oddsyni. hehe finnst þetta soldið fyndið… og að afgreiðslumaðurinn skildi hafa tekið peninginn sem gildan, er bara enn fyndnara. Hefur samt örugglega fengið smá skömm í hattinn frá verslunarstjóranum.

Það er síðan farið að líða að jólum .. 49 dagar held ég. Andrea ætlar að föndra jólakortin í ár. Hún er búin að velja pappír og við erum búnar að kaupa eitthvað skraut til að líma á þau síðan ætlar hún held ég að mála eitthvað líka. Hún er líka búin að finna þrjá hluti sem hana langar að fá í jólagjöf og eru það úr, ekki tölvuúr það var tekið sérstaklega fram, veggklukku í “nýja” herbergið sitt og nýjustu bókina með Fíusól.



3 Skilaboð

  1. þakka þér kærlega fyrir að setja þessar æðislegu myndir af mér á internetið!

    Bryndís Bryndís | 10 Nov, 2008 | Svara þessu

  2. já flott að obama vann hann á eftir að gera góða hluti..

    og svo varðandi 10000 króna seðilinn var bara alger snilld :) þetta var víst einhver útlendingur sem var að afgreiða heyrði ég :)

    Anton frændi Anton frændi | 10 Nov, 2008 | Svara þessu

  3. Það var ekkert að þakka Bryndís mín :) Reyndar á Gísli heiðurinn af því.. ég kom þar ekkert nálægt.

    Guðrún Guðrún | 11 Nov, 2008 | Svara þessu

skrifa skilaboð