Velkomin á heimasíðuna okkar. Hérna ætlum við að setja inn skemmtilegar sögur af því sem er að gerast í kringum okkur. Gísli ætlar einnig að vera mjög duglegur að setja inn myndir svo endilega fylgist með.
Fyrir ykkur sem ekki þekkið okkur þá er hérna smá prófíll af fjölskyldunni:
Gísli er menntaður flugvirki og er að vinna núna sem yfirmaður í viðhalds- og skipulagsdeildinni hjá Air Atlanta Icelandic. Hann byrjaði hjá Atlanta 1999 og var að flakka um heiminn þar til hann byrjaði á skrifstofunni í lok árs 2003.
Ég (Guðrún) byrjaði í Hagfræði við Háskóla Íslands 1999, íhugaði að verða þroskaþjálfari og hætti í skólanum og fór að vinna á sambýli. Byrjaði svo aftur í hagfræðinni en á fjármálalínu. Í barnseignarfríinu ákvað ég að fara í Háskólann á Akureyri og byrjaði í viðskiptafræði, fjármálabraut en snerist svo yfir á stjórnunarbraut eftir fyrstu önnina, nú er ég búin með þetta allt og útskrifaðist með B.Sc. í júni 2006. Þá hóf ég störf hjá Borgarbókhaldi Reykjavíkurborgar eftir að hafa verið þar í rúmt ár, lá leið mín til Askar Capital, þar var ég ekki lengi og er núna að vinna á endurskoðendastofunni Grant Thornton.
Andrea Ruth er litla sponsan okkar, hún fæddist 12 febrúar 2004. Hún er á leikskólanum Hlíðarenda og nýtur sín mjög vel þar. Hún er ofboðslega dugleg að læra af öllum sem umgangast hana. Það sem henni finnst skemmtilegast að gera er að púsla, lesa, hoppa, dansa og syngja.
Endilega kíkið við sem oftast og skiljið eftir skilaboð á fréttunum okkar






















