Afmælisfár

Ætlaði fyrir löngu að vera búin að segja ykkur aðeins frá afmælisfárinu sem er búið að vera og er ekki lokið enn. En ég fór alveg í bakinu á sjómannadaginn og hef eiginlega bara ekki verið stólum hæf síðan. Sem er auðvitað ekkert sniðugt þegar maður vinnur við tölvu allan daginn.

En já s.s. eitt stærsta afmælið er væntanlega 100 ára afmæli Hafnarfjarðar. Við tókum auðvitað þátt i gleðinni og fórum með Andreu og Heklu á laugardeginum á Thorsplanið, stelpurnar voru málaðar í framan og á meðan við biðum í röðinni eftir því þá fylgdist maður með götuleikhúsinu. Voru flestir af erlendu bergi brotnir sem voru að taka þátt í því, en að engu síður skemmtilegt. Við röltuðum síðan í Hellisgerði og fengu stelpurnar gefins óskasteina, hittu álfadrottinguna og “kónginn”, en það var víst kvenkynskóngur. Það var mjög mikið um að vera í Hellisgerði og gaman að rölta þar um. Við fórum síðan auðvitað á Víðistaðatún að hlusta á tónleikana aðallega samt til að hlusta á sveitina hennar Ástrósar, Vicky Pollard. Á sunnudeginum kíkti pabbi til okkar og fór hann með okkur niður á bryggju, þar var nú eitthvað sem heillaði. Auðvitað hoppukastalinn fyrir yngri kynslóðina, björgunarþyrlan sýndi björgunaraðferðir og svo var boðið upp á siglingar en það var svo löng röð í það að við nenntum ekki að bíða. Við fórum þvi að skoða víkingagötuna og ætluðum síðan að gæða okkur á 100 metra afmæliskökunni.. en við vorum víst við vitlausan enda. Skurðarmennirnir dreifðu sér ekki og voru allir á einum endanum. Við gáfumst upp og kíktum bara í bakaríið og fengum okkur kleinu og snúð.

Þessa helgi átti amma líka afmæli og var haldið upp á það í eyjum. Minnir að hún sé orðin 86 ára.. alveg til skammar að muna ekki hvað amma sín er gömul.

Síðan núna 2 júní þá átti Svandís afmæli.. það var náttla stærsta afmælið, skvísan orðin 1 árs og lét sko vin sinn (9 mánaða) finna fyrir því að hún væri eldri. Var ansi hrifin af hárinu hans, greyið var orðinn soldið hræddur við hana. Ósk mamma hennar átti líka afmæli 6 júní ásamt Ástrósu. Síðan núna 17 júní þá á Þóra Gísla afmæli og Anna amma og Valdi afi eiga brúðkaupsafmæli.. þannig það er nóg að gera í að óska fólki til hamingju :)

Til hamingju öll sömul með afmælin :)

andreajump.jpg

margt að gerast..

Það er búið að vera svo mikið um að vera undanfarið, eyjaferð, átak, 100 ára afmæli og 84 ára afmæli (held ég). Byrja á byrjuninni..

Eyjar:
Við mæðgurnar skruppum til eyja yfir eina helgi. FYrsta sinn sem Andrea fór í flugvél og gekk rosalega vel. Henni fannst það mjög gaman. Við vorum mjög heppnar með veður og vorum mikið úti við. Hún fór meðal annars í sund með ömmu sinni og frænku. Fyllti hús afa síns af fíflum, en hún var þvílíkt ánægð með öll blómin sem hún gat týnt. Auðvitað horfðum við svo á júróvisjón og kusum. Andrea var mjög hrifin af laginu frá Albaníu, sjóræningjalaginu, danska laginu og auðvitað því íslenska. Hún var ekki alveg að fatta að hún gæti ekki kosið það íslenska.

Átak:
Við ætluðum að taka 3 daga í svona hreinsun og bjuggumst við að það yrði mjög erfitt, en það reyndist mun erfiðara en við töldum. Fyrsti dagurinn var ekkert svo slæmur en þá lifðum við á prótein shake og fengum grillaðan lax í kvöldmatinn. Næstu tveir dagar áttum við að lifa bara á ávöxtum og fá lax í kvöldmatinn. Dagur tvö var nú bara martörð, hausverkurinn alveg hræðilega hræðilegur og engin verkjalyf sem virkuðu á hann, og svengdin. Próteinið seðjaði alla vega hungrið en það gerðu ekki ávextirnir. Við þraukuðum hálfan þriðja daginn en þá ákváðum við að hætta í þessu og fengum okkur að borða :) VIð vorum nú samt dugleg að mínu mati enda var þetta erfitt verkefni. En nú er bara að halda áfram og borða hollara fæði.

Segi ykkur frá afmælunum seinna.. Gísli setur örugglega inn myndir.

Átak

Gísli var svo frábær að vilja vera með mér í svona 3ja daga hreinsunarkúr. Ég er nefnilega að fara á “nýtt” matarræði - breyta matarræðinu mínu og einkaþjálfarinn taldi það ágætis hugmynd að gera svona stuttan hreinsunarkúr á undan.

Í dag er s.s. fyrsti dagurinn okkar á þessum kúr og eigum við bara að drekka prótein í dag og borða síðan grillaðan lax í kvöld. Enn gengur ágætlega, en þetta verður örugglega mjög erfiðir þrír dagar. Næstu tvö daga eigum við bara að borða ávexti. Leyfum ykkur að fylgjast með.

En já við Andrea fórum við til eyja síðustu helgi.. það er eiginlega bara efni í annan póst.. kem kannski með það inn á næstu dögum.

Wezzer og nýja myndbandið þeirra !

Og ekki gleyma að kíkja á tónleika á víðistaðatúni Laugardaginn 31 kl 17:00

Vicky Pollard spilar .. smá plug fyrir Astrós frænku