margt að gerast..

Það er búið að vera svo mikið um að vera undanfarið, eyjaferð, átak, 100 ára afmæli og 84 ára afmæli (held ég). Byrja á byrjuninni..

Eyjar:
Við mæðgurnar skruppum til eyja yfir eina helgi. FYrsta sinn sem Andrea fór í flugvél og gekk rosalega vel. Henni fannst það mjög gaman. Við vorum mjög heppnar með veður og vorum mikið úti við. Hún fór meðal annars í sund með ömmu sinni og frænku. Fyllti hús afa síns af fíflum, en hún var þvílíkt ánægð með öll blómin sem hún gat týnt. Auðvitað horfðum við svo á júróvisjón og kusum. Andrea var mjög hrifin af laginu frá Albaníu, sjóræningjalaginu, danska laginu og auðvitað því íslenska. Hún var ekki alveg að fatta að hún gæti ekki kosið það íslenska.

Átak:
Við ætluðum að taka 3 daga í svona hreinsun og bjuggumst við að það yrði mjög erfitt, en það reyndist mun erfiðara en við töldum. Fyrsti dagurinn var ekkert svo slæmur en þá lifðum við á prótein shake og fengum grillaðan lax í kvöldmatinn. Næstu tveir dagar áttum við að lifa bara á ávöxtum og fá lax í kvöldmatinn. Dagur tvö var nú bara martörð, hausverkurinn alveg hræðilega hræðilegur og engin verkjalyf sem virkuðu á hann, og svengdin. Próteinið seðjaði alla vega hungrið en það gerðu ekki ávextirnir. Við þraukuðum hálfan þriðja daginn en þá ákváðum við að hætta í þessu og fengum okkur að borða :) VIð vorum nú samt dugleg að mínu mati enda var þetta erfitt verkefni. En nú er bara að halda áfram og borða hollara fæði.

Segi ykkur frá afmælunum seinna.. Gísli setur örugglega inn myndir.

Átak

Gísli var svo frábær að vilja vera með mér í svona 3ja daga hreinsunarkúr. Ég er nefnilega að fara á “nýtt” matarræði - breyta matarræðinu mínu og einkaþjálfarinn taldi það ágætis hugmynd að gera svona stuttan hreinsunarkúr á undan.

Í dag er s.s. fyrsti dagurinn okkar á þessum kúr og eigum við bara að drekka prótein í dag og borða síðan grillaðan lax í kvöld. Enn gengur ágætlega, en þetta verður örugglega mjög erfiðir þrír dagar. Næstu tvö daga eigum við bara að borða ávexti. Leyfum ykkur að fylgjast með.

En já við Andrea fórum við til eyja síðustu helgi.. það er eiginlega bara efni í annan póst.. kem kannski með það inn á næstu dögum.

Wezzer og nýja myndbandið þeirra !

Og ekki gleyma að kíkja á tónleika á víðistaðatúni Laugardaginn 31 kl 17:00

Vicky Pollard spilar .. smá plug fyrir Astrós frænku

Andrea Ruth

Andrea Ruth, originally uploaded by Guðrún og Gísli.

Andrea fékk gleraugun sín í dag. Hún var ofboðslega ánægð með og gekk vel að vera með þau. Það fyrsta sem hún sagði eftir að þau voru komin upp var ” Mamma, nú sé ég þig miklu betur.” :)

Annars erum við mæðgurnar að fara til eyja á morgun og verðum þar fram á sunnudag.

Edit frá pabba… þetta er með flottari myndum sem ég hef séð ! yndislegt .. kossar frá miami